Þingkonan Eygló Harðardóttir ætlar ekki að hlaupa maraþon 2013 heldur ætlar hún að útbúa 48 vikumatseðla. Smartland mun fylgjast með henni.
„Nýtt ár er hafið. Liðin ár hafa áramótaheitin verið margvísleg. Leggja af, kaupa líkamsræktarkort, vinna minna, hlaupa ½ maraþon, leggja af, sinna fjölskyldunni meira. Efndirnar hafa verið jafn fjölbreytilegar og heitin sjálf. Nú er runnið upp nýtt ár. Ný tækifæri og nýtt áramótaheit og þetta blogg. Markmiðið með blogginu er að setja saman matseðla með 7 kvöldmáltíðum fyrir allt árið 2013. Til að gera þetta skemmtilegra má matseðilinn ekki kosta meira en 20.000 kr. á viku og heildarmatarinnkaupin ekki vera meiri en 30.000 kr. á viku. Mér fannst þetta mjög metnaðarfullt þar til ég fletti upp neysluviðmiðunum fyrir fjögurra manna fjölskyldu hjá velferðarráðuneytinu. Þar segir að neysluviðmiðin eru 117.400 kr. á mánuði fyrir mat, drykkjavörur og aðra dagvöru,“ segir Eygló Harðardóttir. Hún segir að eiginmaður hennar hafi spurt hvers vegna í ósköpunum hana langaði að gera þetta.
„Til að spara pening, verða svona hagsýn húsmóðir, skrifa meira og betur, borða hollari mat og sinna einni af stóru ástríðunum í lífinu.“
Eftir þessum reglum ætlar Eygló að fara:
Hægt verður að fylgjast með blogginu hennar Eyglóar á Smartlandi.