„Þessi dásamlega fiskisúpa er hin besta byrjun á góðu ári. Hún er ofureinföld í gerð og svo fersk og bragðgóð að ég veit að hún mun slá í gegn hjá ykkur eins og hún gerði hjá mér og minni fjölskyldu. Hún er létt í maga og meinholl sem skemmir að sjálfsögðu ekki fyrir ef þið hafið verið í svipuðum gír og ég um jólin. Njótið vel, kæru vinir,“ segir Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og matarbloggari, á Gulur, rauður, grænn og salt.
1 bolli hrísgrjón
2 msk. smjör
500 g risarækjur
Salt og pipar
2 hvítlauksrif, pressuð
1 laukur, smátt skorinn
1 rauð paprika, rauð, smátt skorin
1 msk. rifið engifer
2 msk. rautt karrí, Red curry paste frá Blue dragon
2 dósir kókosmjólk, t.d. Coconut milk frá Blue dragon)
960 ml nautasoð (eða vatn og 3-4 nautakraftar í teningum)
Safi af 1 límónu
Kóríander til skreytingar (má sleppa)