Halloween-graskerssúpa

Valentína Björnsdóttir.
Valentína Björnsdóttir. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

„Þetta er svona hálf tilviljunarkennd súpuuppskrift. Eins og oft áður á þessum árstíma þegar graskerin flæða um allar grænmetisdeildir hefur mig oft langað til að föndra úr þeim eitthvert Halloween-gerpi og setja kerti í og hafa kósí á útidyratröppunum. En þetta tímabil gengur frekar hratt yfir og hugmyndin verður alltaf grafin og gleymd, eiginlega samstundis,“ segir Valentína Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Móður Náttúru, í sínum nýjasta pistli á mbl.is: 

Í búðinni í morgun var kona á undan mér á kassanum að að kaupa 6 grasker og það kveikti í mér löngun í að búa til súpu úr graskeri, enda veðrið algerlega til þess fallið að elda heita og nærandi súpu. Þar sem ég er stöðugt með mat á heilanum, stóðst ég ekki freistinguna og hljóp til baka á graskersfjallið og náði mér í eitt stykki.

Þegar heim var komið hófst ég handa við súpugerðina, bara svo ég segi ykkur alveg satt þá er frekar leiðinlegt að skera þetta flykki. En það hafðist og tilviljun réði því hvaða hráefni fékk að fljóta með, þetta var einfaldlega það sem ég átti til heima, en eins og með allar góðar súpur eru töfrarnir oftast fólgnir í því að nota sköpunargleðina og skálda úr því sem til er.

Svo hafa skal það sem hendi er næst og fást ekki um það sem ekki fæst!

mbl.is/ThinkstockPhotos

Graskerssúpa (vegan) fyrir 4-6

Olia

1,5 kg grasker skorið í bita

2 rauðlaukar

5 hvítlauksrif

½ paprika

100 g sellerí

1 msk cumin fræ

½ sæt kartafla

1 l vatn

2 msk grænmetiskraftur

50 g engifer

1 tsk turmerik

1 dós kókosmjólk

Chilli eftir smekk

2 límónulauf lauf (má sleppa)

Safi úr 2 límónum

1 bolli ferskt kóríander saxað

Salt og pipar eftir smekk

Skerið grasker, rauðlauk, papriku og sellerí í bita. Setjið allt í ofnskúffu ásamt hvítlauknum. Dassið yfir olíu og cummenfræjum. Bakið í ofn í við 180° í 40 mínútur.

Setjið vatn grænmetiskraft, kókosmjólk í pott og hitið saman.

Þegar grænmetið er bakað er það sett út í pottinn ásamt chilli, límónulaufi, engifer, kóríander, límónusafa og túrmerik.

Síðan er allt maukað saman með töfrasprota eða í blender.Hellið aftur í pottinn látið suðuna koma upp og smakkið til með salt og pipar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert