Ljósmyndarinn Katrín Björk hafði haldið úti matarbloggsíðunni Modern Wifestyle í fimm ár, þegar hún fór að hugsa um leggja síðuna niður, vakti hún áhuga samstarfsfólks lífstílsdrottningarinnar Mörthu Stewart sem fékk þessa íslensku hæfileikakonu undir eins til liðs við sig.
Hildur Loftsdóttir blaðakona Morgunblaðsins í New York tók ítarlegt viðtal er við Katrínu sem mun birtast í Morgunblaðinu næstkomandi þriðjudag en þangað til er um að gera og skoða myndböndin sem Katrín gerði fyrir Marthastewart.com fyrir hátíðirnar.
Hér leggur Katrín á borð fyrir áramótin en Katrín segist leggja upp úr einfaldleikanum og mælir með heimagerðum áramótahöttum að hætti drottningarinnar Mörthu Stewart. „Ég blanda saman mismunandi diskum í svipuðum tónum til að fá afslappaðri útkomu,“ segir Katrín en punkturinn yfir i-ið eru mismunandi fallegar grænar greinar sem hún hnýtir á tauservéttur. Katrín bendir þó á að fólk skuli varast að ofhlaða borðið af skrauti því maturinn sé jú aðalatriðið.
Smelltu hér fyrir fleiri Áramótamyndbönd Katrínar svo sem kokteiluppskriftir.