Beikonvafið brauð með rjómaosti, döðlum og valhnetum

Beikonvafið brauð með rjómaosti, döðlum og valhnetum. Uppskriftin er úr …
Beikonvafið brauð með rjómaosti, döðlum og valhnetum. Uppskriftin er úr tímaritinu Gestgjafinn. ljufmeti.com

Svava á ljúfmeti.com bauð upp á þennan girnilega forrétt á Gamlárskvöld. Hún gerði tvöfalda uppskrift og ekki veitti af. „Ég eldaði kalkún og þar sem við vorum svo mörg ákvað ég að vera með smá forrétt sem ég fann í Gestgjafanum, beikonvafið brauð með rjómaosti, döðlum og valhnetum. Ég tvöfaldaði uppskriftina og ekki veitti af. Mjög gott," segir Svava í nýrri færslu á bloggsíðu sinni.

Beikonvafið brauð með rjómaosti, döðlum og valhnetum 

  • 10 fransbrauðsneiðar
  • 200 g rjómaostur
  • 100 g döðlur, saxaðar
  • 50 g valhnetur (ég var með kasjúhnetur)
  • hnefafylli graslaukur, smátt saxaður
  • um 20 beikonsneiðar
  • Salt og pipar

Hitið ofn í 190°. Skerið skorpuna af brauðinu og fletjið sneiðarnar út með kökukefli. Blandið saman rjómaosti, döðlum, valhnetum og graslauk.
Bragðbætið með salti og pipar.
Smyrjið brauðsneiðarnar með rjómaostablöndunni og rúllið þeim þétt upp.
Vefjið beikoni utan um brauðið og skerið hverja rúllu varlega í tvennt (mér fannst betra að skera rúlluna fyrst í tvennt og vefja beikoninu síðan utan um hvor helming fyrir sig).
Raðið á ofnplötu og bakið í ofninum  í um 20 mínútur, eða þar til beikonið hefur eldast hæfilega. Látið kólna lítillega áður en borið fram.

Svava og ljufmeti.com er uppáhald margra landsmanna enda klikka ekki …
Svava og ljufmeti.com er uppáhald margra landsmanna enda klikka ekki uppskriftir frá henni. ljufmeti.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert