Það verður að segjast að það er mun skemmtilegra að borða radísur sem líta út eins og Súper Mario Bros-sveppir. Það er ísraelski vöruhönnuðurinn Avichai Tadmor sem hefur hannað ákaflega skemmtilegt plasttæki sem gerir það afar einfalt að skera radísurnar út eins og sveppina frægu úr tölvuleiknum Súper Mario Bros. Það er án efa auðveldara að fá börn og grænmetisfúla einstaklinga til borða radísur þegar þær líta svo skemmtilega út.
Áhaldið kallast Ravanello og sker neðan af radísunni til að mynda fót á sveppinn en ofan á plastáhaldinu er tota sem sker út doppurnar á sveppnum. Hér geta áhugasamir skoðað og pantað gripinn.
Radísur eru bragðlítið en fallegt grænmeti sem oft er til í íslenskum matvöruverslunum og margir rækta hérlendis yfir sumartímann. Bleiki liturinn er eftirsóknaverður og því eru radísur gjarnan notaðar á veitingahúsum til skreytinga.