Margir hafa upplifað þann nútímaharmleik að vera rændir nestinu sínu í vinnu eða skóla. Jafnvel þótt við höfum engin tölfræðileg gögn um tíðni þess háttar glæpa þá grunar okkur að þeir séu mun algengari en flesta grunar. Hver man til dæmis ekki eftir atriðinu fræga í Friends þegar yfirmaður Ross stal Þakkagjörðarsamlokunni hans sem framkallaði eitt frægasta taugaáfall sjónvarpssögunnar?
En örvæntið eigi. Búið er að finna hina fullkomnu lausn á vandanum en það er hinn ofurfrumlegi myglupoki. Í raun má segja að myglupokinn sé dulargervi sem fæli mögulega þjófa frá. Auðvelt er að búa til sinn eigin myglupoka - bara dass af grænni málningu en notið samt tvo poka - einn fyrir málninguna og annan fyrir samlokuna.