Í grein sem birtist á CNN.com er ástríðu japana fyrir KitKat lýst. Nýjasta æðið þar í landi eru sushi-bitar gerðir úr Kit-Kat og eru einungis fáanlegir í takmarkaðan tíma. Bitarnir bragðast þó ekki eins og sushi heldur líkjast því einungis. Bitarnir koma í þremur bragðtegundum, túnfisks sem er þó í raun og veru með hindberjabragði, eggjavafningurinn með þarablaði er í raun og veru graskersbúðingur umlukinn súkkulaði og síðast en ekki síst er melónu- og marscapone-ostabiti. Í öllum bitunum eru poppuð hrísgrjón með hvítu súkkulaði og keim af wasabi. Sumar súkkulaðitegundirnar eru gerðar með það í huga að nota skuli sælgætið í eldamennsku.
Kit-Kat hefur um árabil verið frægt fyrir nýjungagirni sína á japönskum markaði en wasabi-, sætkartöflu-, sítrónuediks- og sake-Kit-Kat eru meðal 300 bragðtegunda sem Kit-Kat hefur sett í sölu þar í landi síðan um aldamótin 2000. Það er því ekki að undra að KitKat sé eitt vinsælasta súkkulaðið þar í landi. Sumar af þessum flippuðu bragðtegundum hafa selst svo vel að þær hafa ratað í fleiri heimshluta. Má þá til dæmis nefna Kit-Kat með grænu tei.
Hugmyndin að sushi-Kit-Kat byrjaði sem grín á samfélagsmiðlum í kjölfar aprílsgabbs. Súkkulaðiframleiðandinn birti grínauglýsingu fyrir súkkulaði-sushi sem vakti svo gífurlega sterk viðbrögð að ákveðið var að framleiða bitana í takmörkuðu magni fyrir alvöru. Miki Kanoh hjá Nestle Japan's Corporate Affairs Group segir í samtali við CNN að hinir fágætu bitar verði gefnir viðskiptavinum sem eyða að lágmarki 3.000 yenum (um 3.000 ISK) í nýjustu Kit-Kat-súkkulaðiversluninni í Tokyo til 14. febrúar. Fyrir áhugsama sem eru á leið til Japan eru hér upplýsingar um hvar má finna verslunina:
KitKat Chocolatory Ginza, 3-7-2 Ginza, Chuo-ku, Tokyo; +81 (0)3 6228 6285