Fjölmiðlakonan vinsæla Eva María Jónsdóttir birti mynd af kjúklinga-fajitas í sætri kartöflu sem fékk gríðarmikil viðbrögð á Facebook. Eva María segir réttinn hafa bragðast mjög vel en uppskriftina fékk hún úr myndbandi frá Goodful.
Hér að neðan gefur að líta myndbandið sem Eva María fór eftir við matreiðsluna en hún segir að þótt útkoman sé kannski ekki eins glæsileg og fyrirmyndin hafi bragðið verið mjög gott.