Gyllt eldhúsgóss mokselst hérlendis

Guðdómlegt gyllt eldhúsgúmmelaði er æði vinsælt hérlendis. Þessi kokteilglös sem …
Guðdómlegt gyllt eldhúsgúmmelaði er æði vinsælt hérlendis. Þessi kokteilglös sem dæmi eru ákaflega vinsæl og fást í Snúrunni.

Hér er komið samansafn af stórkostlega smart eldhúsgúmmelaði sem rokselst hérlendis. Það er nokkuð ljóst að gyllt og kopar er alls ekki að fara úr tísku, hvort sem um ræðir mæliskeiðar eða hrærivélar.

Koparlitað kokteilglas er klárlega sniðug gjöf handa kokteilunnendum eða bara hverjum sem er. Glösin eru hin mesta eldhúsprýði og eru einnig mjög smart undir eftirrétti eða sunnudags-granólað.
Snúran: 5.900 kr.

Hver vill ekki drekka kokteil úr þessu gulli?
Hver vill ekki drekka kokteil úr þessu gulli? mbl.is/pintrest.is


Gylltar mæliskeiðar taka baksturinn vissulega upp á æðra plan. Er það ekki annars? 
A4: 1.499 krónur.

Mæliskeiðar geta verið smart.
Mæliskeiðar geta verið smart. mbl.is/pintrest.com


Gylltir ostahnífar sóma sér vel hvar sem er.
Snúran: 5.290 krónur.

Gylltir ostahnífar eru smart á veisluborðinu.
Gylltir ostahnífar eru smart á veisluborðinu. mbl.is/pintrest.com


Guðdómlega sparilegur ananas með gylltum toppi. Fæst líka fölbleikur, algylltur, hvítur og grár. Ananasinn sómir sér vel sem eldhússkreyting eða sem skreyting á kertabakka. 
A4: 5.999 krónur.

Þessi elska hressir upp á hvaða rými sem er.
Þessi elska hressir upp á hvaða rými sem er. bloomingville.com


Kitchenaid-hrærivélar
 hafa lengi vel verið einar vinsælustu hrærivélarnar hérlendis. Koparlituð hrærivél er einstaklega hressandi og fær örugglega einhverja til að vilja þeyta rjóma allan sólahringinn.
Einar Farestveit: 109.990 krónur.

Kitchenaid-hrærivélinn kemur bæði í þessum kopar-rauða lit og dökkum koparlit.
Kitchenaid-hrærivélinn kemur bæði í þessum kopar-rauða lit og dökkum koparlit. Mbl.is/ pintrest.com


Þessi mjólkurkanna myndi sóma sjálfri drottningunni. Flóuð mjólk úr þessari elsku er án efa sérstaklega góð. Hún myndi líka vel passa undir ábót á Moscow Mule!
A4: 3.299 krónur.

Bloomingville elskar gylltar heimilisvörur og hefur meðal annars framleitt gyllt …
Bloomingville elskar gylltar heimilisvörur og hefur meðal annars framleitt gyllt rifjárn og pítsuskera. mbl.is/Bloomingville.com


Te nýtur sifellt meiri vinsælda hérlendis. Gyllt tesía er sérlega smart. Það liggur við að maður hengi þetta krútt um hálsinn.
A4: 999 krónur.

Tesían er frá Bloomingville.
Tesían er frá Bloomingville. Mbl.is/ pintrest.com


Gylltur ananasbakki er greinilega bráðnauðsynlegur á heimili fagurkera. Undir konfekt, makkarónur, hummus eða bara undir kerti eða skartgripi.
A4: 1.499 krónur.

Bakkinn kemur einnig í hvítu.
Bakkinn kemur einnig í hvítu. mbl.is/ bloomingville.com


Þetta er einn fallegasti potturinn á markaðnum í dag. Potturinn er frá Kitchenaid og er 3ja laga stálpottur sem fæst í tveimur stærðum.
Byggt og búið: 22.995 - 39.995 krónur.

Kitchenaid-potturinn er mjög vinsæll og þykir hin besta brúðargjöf.
Kitchenaid-potturinn er mjög vinsæll og þykir hin besta brúðargjöf. Mbl.is/ pintrest.com


Koparpressukanna er smart á morgunverðarborðið.
Húsgagnahöllin: 12.990 krónur.

Kannan er frá danska hönnunarfyrirtækinu Bodum.com.
Kannan er frá danska hönnunarfyrirtækinu Bodum.com. mbl.is/bodum.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert