Fjölmiðlakonan Sigurlaug M. Jónasdóttir er mikill matgæðingur eins og landsmenn þekkja og veit fátt skemmtilegara en að búa til góðan mat. Aðstaðan þarf þó að vera sæmileg eins og gefur að skilja og brá eiginmaður hennar, Torfi Hjálmarsson, á það snjalla ráð að endurnýta nuddbekk sem var áður í eigu systur hennar og breyta honum í eldhúsbekk í sumarbústað þeirra hjóna við Meðalfellsvatn.
Sigurlaug er að vonum hæstánægð með útkomuna og birti stolt mynd af dýrðinni á Facebook-síðu sinni ásamt þeim orðum að hún hefði tekið við af systur sinni og nú væri hún að nudda í risotto með kjúklingi og sítrónu.