Við erum eiginlega mest hissa á því að þetta sé ekki löngu búið að gerast en tilkynnt hefur verið að MGM-hótelrisinn sé að hanna splunkunýjan og byltingarkenndan bar sem mun opna í Las Vegas.
Og hvað er svona merkilegt við það? Jú, barinn mun bera nafnið Sex and the City og vera kenndur við samnefnda sjónvarpsþætti og kvikmyndir sem nutu gríðarlegra vinsælda á fyrstu árum þessarar aldar og gera enn. Það sem einkenndi þá þætti var mikil drykkja vinkvennanna á vodkadrykknum Cosmopolitan en stefnt er að því að nýi barinn muni innihalda stærsta úrval heims af bragðbættu vodka og húskokteillinn verður að sögn eigenda „besti Cosmopolitan í heimi.“
Reynt verður að höfða til karlpeningsins með sérstöku speakeasy-herbergi sem verður helgað Mr. Big sem var ástmögur aðalpersónunnar Carrie Bradshaw í þáttunum. Þar verður veglegt úrval af viskí og vindlum í boði.
Áætluð opnun er í byrjun árs 2018.