Kardashian-systur hafa komið sér vel fyrir á heimilum sínum og eru óhræddar við að sýna dýrðina enda mega þær stoltar vera. Kourtney Kardashian gerðist svo fræg að prýða forsíðu Architectural Digest-tímaritsins þar sem heimili hennar var skoðað.
Og fallegt var það, því verður ekki neitað. Eldhúsið er auðvitað það sem við höfum mestan áhuga á og það stóð undir nafni. Flottheitin voru mikil og sjálfsagt marga hversdagskokkana sem dreymir um að fá að elda í þessari dásemd.
Alls konar huggulegt prýðir þetta fallega eldhús.
Ljósmynd/Architectural Digest
Ekki amalegur ísskápur.
Ljósmynd/Architectural Digest
Eldavélin er stórkostleg. Takið eftir krananum fyrir ofan hana. Hann er sérlega heppilegur þegar þarf að fylla pottana af vatni.
Ljósmynd/Architectural Digest
Mynd af Andy Warhol prýðir eldhúsið.
Ljósmynd/Architectural Digest
Kourtney getur valið um hvort hún vill hafa gull- eða silfurhnífapör með matnum.
Ljósmynd/Architectural Digest
Að sjálfsögðu eru teikningar eftir börnin á veggjunum.
Ljósmynd/Architectural Digest
Huggulegt.
Ljósmynd/Architectural Digest
Nóg er af vatni og alls kyns drykkjum í ísskápnum. Hurðin er gagnsæ þannig að bannað er að hafa drasl.
Ljósmynd/Architectural Digest
Háir skápar sýna fallega muni.
Ljósmynd/Architectural Digest
Kourtney safnar Pez-köllum.
Ljósmynd/Architectural Digest