„Laukhringjagagnrýnandinn“ afhjúpaður

Lorde elskar laukhringi en vestanhafs er hún nú kölluð Lorde …
Lorde elskar laukhringi en vestanhafs er hún nú kölluð Lorde of the Rings. billboard.com

Komið hefur í ljós að laukhringjagagnrýnandinn mikli er engin önnur en nýsjálenska söngkonan Lorde. Hefur hún ekki farið leynt með ást sína á laukhringjum og stofnaði leynisíðu á Instagram þar sem hún birti myndir af laukhringjum sem hún borðaði á ferðalagi sínu um heiminn og gaf þeim einkunn. 

Einhverjir höfðu þegar giskað á að þetta væri Lorde og viðurkenndi hún það í þætti hjá spjallþáttastjórnandanum Jimmy Fallon. Hún sagði að þetta hefði verið hugsað sem góðlátlegt grín en búið er að eyða reikningnum. 

Eitthvað eigum við þó erfitt með að trúa því að þetta hafi verið að valda usla þar sem eingöngu var búið að birta fjóra dóma um laukhringi og fylgjendurnir voru 24 sem telst fremur slappt. 

Skjáskot.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert