Soð-boð kemst í heimsfréttirnar

Ljósmynd: Facebook/Soð

Ævintýri Matreiðslulistamannsins Kristins Guðmundssonar halda áfram að gera víðreist um heiminn eftir að hann sous-vidaði lambaskrokk í heita potti foreldra sinna með eftirminnilegum hætti á dögunum. 

Nú er það kanadíska vefsíðan CBC sem fjallar ítarlega um gjörninginn og eru menn þar geinilega hrifnir af uppátæki Kristins. 

Kristinn er að vonum ánægður með viðtökurnar en uppátækið hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim enda ekki á hverjum degi sem lamb er sous-vidað í heitum potti. 

Sjá frétt CBC um málið: Next level sous-vide: Icelandic man cooks a lamb in a hot tub

Kristinn ánægður með afraksturinn.
Kristinn ánægður með afraksturinn. mbl.is/ÞS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert