Þessi ferska og góða sósa passar með nánast með hverju sem er. Hvort sem er með fiski eða kjöti. Ekki skemmir að sósan er fljótgerð og í léttari kantinum. Uppskriftin er frá Guðrúnu Erlu Gunnarsdóttur sem fékk hana frá vinkonu sem fékk hana frá vini og svo framvegis. Bestu uppskirftirnar fæðast nefnilega oftast þannig.
1 dl Hellmans light-majones
1 dl 10 prósent sýrður rjómi
pipar (helst þriggja lita piparkornsblanda í kvörn). Eftir smekk. Athugið að þetta er piparsósa svo það þarf mikinn pipar!
Öllu hrært saman. Ótrúlega einfalt og alveg ofboðslega gott með nánast hverju sem er.