Blómkálsgratín með ostasósu

Vissir þú að spergilkál er mjög járnríkt og aðeins 26 …
Vissir þú að spergilkál er mjög járnríkt og aðeins 26 hitaeiningar í 100 grömmum? mbl.is/islenskt.is

Nú sést víða gullfallegt íslensk grænmeti í verslunum enda hamast bændur við að taka upp brakandiferskt blómkál, spergilkál og kartöflur. Hér kemur góð uppskrift af 3 kála-gratíni frá íslenskt.is en heiðurinn af uppskriftinni á matgæðingurinn Nanna Rögnvalds.

800 g blómkál
300 g spergilkál
300 g hvítkál
salt
50 g smjör
3 msk hveiti
300 ml mjólk
1 msk ferskt timjan, saxað (eða 1 tsk þurrkað)
hvítur pipar
1 ostarúlla með hvítlauk og steinselju frá Ostahúsinu

Ofninn hitaður í 180°C Blómkál og spergilkál tekið sundur í stóra kvisti og stönglarnir skornir í sneiðar. Hvítkálið skorið í ræmur eða bita. Saltvatn hitað í stórum potti og kálið soðið í 5-8 mínútur, eða þar til það er tæplega meyrt – best er að setja kálstönglasneiðarnar í pottinn fyrst og láta þær sjóða ögn lengur en hitt.

Á meðan er smjörið brætt í öðrum potti, hveitinu hrært saman við og síðan er mjólkinni hrært saman við smátt og smátt og sósan bökuð upp. Kryddað með timjani, pipar og salti og látið malla í nokkrar mínútur. Vatninu hellt af kálinu og það sett í eldfast fat. Ostarúllan skorin í bita, sett út í sósuna og hrært þar til osturinn er bráðinn.

Sósan á að vera þykk en ef hún er of þykk má þynna hana ögn með mjólk. Hellt jafnt yfir kálið. Sett í ofninn og bakað í 25-30 mínútur, eða þar til gratínið er gullinbrúnt.

Höfundur uppskriftar:
Nanna Rögnvaldardóttir

Brakandi ferskt íslenskt blómkál streymir nú í verslanir.
Brakandi ferskt íslenskt blómkál streymir nú í verslanir. mbl.is/islenskt.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert