Matarbloggarinn Svava Gunnarsdóttir er stödd á Balí þar sem hún nýtur lífsins. Hún lætur það þó ekki stoppa sig í að deila ljúffengum uppskriftum og skemmtilegum hugleiðingum á síðu sinni ljúfmeti.com.
Fyrsta færslan frá Balí var þó ákaflega íslensk og hljóðar upp á rabarbaraböku. Fullkomið með sunnudagskaffinu.
Rabarbarabaka með vanillu
Deig
Hitið ofninn í 200°. Skerið rabarbarann í ca 1 cm stóra bita. Smyrjið eldfast mót með smjöri og setjið rabarbarann í botninn á mótinu. Blandið sykri, vanillusykri og kartöflumjöli saman og stráið yfir rabarbarann.
Degið: Setjið hveiti, haframjöl, sykur, vanillusykur og smjör í skál og vinnið saman þar til myndast gróf mylsna. Dreifið henni yfir rabarbarann og endið á að láta síróp í mjórri bunu yfir bökuna (það á ekki að þekja hana alla). Bakið í um 25 mínútur, eða þar til bakan hefur fengið gylltan lit og rabarbarinn er orðinn mjúkur.