Nýjasta viðbótin við eldhúsinnréttingaflóru IKEA er komin til landsins. Um er að ræða skápahurðir með krítaráferð. Hurðirnar eru fallega mattar og virka einnig sem hin besti minnislisti, undir brandara, falleg skilaboð, matseðil vikunnar eða ástarjátningar.
Hugmyndin er að þannig geti íbúar gert eldhúsin sín mun persónulegri á skemmtilegan og auðveldan máta með því að bæta við einni eða fleiri krítarhurðum í eldhúsið. Þannig má vel flippa upp á gamla eldhúsið með því að skipta út einni skápahurð. Þynnan á yfirborðinu er að sögn mjög höggþolin og umhirða og þrif eru því einföld.
Við á Matarvefnum rákumst einnig á þessi fallegu bleiku kampavínsglös sem eru reyndar uppseld í augnablikinu og marmaradiskamettu. Ákaflega lekkert!