Það er ekki annað hægt en að dást að litagleðinni og hressleikanum í þessu frábæra eldhúsi sem er í eigu sjónvarpsstjörnunnar Ingrid Hoffman. Ingrid er latnesk fram í fingurgóma og þættir hennar Simply Delicioso sem sýndir eru á Food Network fjalla einmitt um latneskan mat.
Ingrid elskar lífið en hún er greind með rauða hunda og hefur það haft mikil áhrif á mataræði hennar og hvernig hún lifir lífinu. Hún fékk suðurafríska listamanninn Brett Murray til að gera fyrir sig listaverk með orðum Oprah Winfrey sem segir OPRAH SAYS LIVE LIFE DELICIOUSLY. Hún hafi ávallt lifað eftir þessum orðum og þau eigi vel við.