Sílíkon-klakabox geta verið hið mesta undratæki eins og þetta myndband sýnir. Til dæmis er mjög sniðugt að frysta ferskar kryddjurtir í garðinum í olíu líkt og myndbandið sýnir eða hvítlauk. Jii eða bæði saman!
Einnig er mjög sniðugt að frysta afgangsdeig í formunum og baka bara 2-3 smákökur í einu og borða þær volgar í hvert sinn. Fyrir utan hvað það kemur góð lykt í húsið!
Slík box fást víða til dæmis í Tiger.