Þóra Sigurðardóttir
Það er fátt sem er meira spennandi en lúin eldhús sem hafa fengið gagngera yfirhalningu sem hefur heppnast alveg hrein sjúklega vel. Þetta eldhús mátti muna sinn fífil fegri og þrátt fyrr að hægt hefði verið að velja aðrar útfærsluleiðir og mögulega nýta það sem fyrir var betur þá erum við engu að síður rosalega hrifin af útfærslunni sem valin var – þá ekki síst þar sem borðplássið jókst mikið og eins og allir vita þá er borðpláss það sama og vinnupláss í eldhúsi og aldrei hægt að hafa of mikið af því.
Þetta eldhús er að finna á heimasíðunni Chris Loves Julia sem er frábær uppspretta snjallra hugmynda.