Stórhættulegir kökuhnífar innkallaðir

Martha Stewart þarf að innkalla fjölda kökuknífa.
Martha Stewart þarf að innkalla fjölda kökuknífa. AFP

Þetta er pínu fyndið en samt auðvitað ekki fyrir þá sem liggja slasaðir eftir að hafa notað nýjustu kökuhnífana frá Mörthu Stewart. Búið er að innkalla yfir 19 þúsund eintök eftir að minnsta kosti fjögur slys þar sem notandinn skarst illa eftir að kökuhnífur brotnaði í höndunum á honum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem áhöld frá Stewart eru innkölluð en árið 2015 voru 12 þúsund steikarpönnur innkallaðar eftir að í ljós kom að þær áttu það til að skvetta olíu framan í fólk.

Stewart hefur ekki tjáð sig um málið opinberlega.

Hnífarnir hættulegu sem hafa verið innkallaðir.
Hnífarnir hættulegu sem hafa verið innkallaðir. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert