Uppáhalds eldhúsgræjurnar hennar Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir elskar sæta mola, kröftug heimilistæki og góðan …
Ebba Guðný Guðmundsdóttir elskar sæta mola, kröftug heimilistæki og góðan mat.. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hollustugyðjan og sjónvarpskokkurinn Ebba Guðný Guðmundsdóttir vandar vel valið á þeim eldhúsgræjum sem hún kaupir sér. Við fengum að vita hvaða tæki og tól eru í uppáhaldi hjá henni.

„1. Vita Mix blandarinn minn.“
Það kemur kannski ekki á óvart að í fyrsta sæti hjá Ebbu er Vitamix blandari - nákvæmlega sama græja og Solla á Gló setti í sitt fyrsta sæti þegar við á Matarvefnum spurðum hana sömu spurningar fyrir skemmstu.

 

„2. Kitchenaid vélin mín.“

Ebba á hvíta og klassíska vél.
Ebba á hvíta og klassíska vél.

 

„3. Vöfflujárnið mitt (tvöfalt) frá Aviken, hef líka átt frá Wilfa, frábær líka.


„4. Fizzler pottarnir
mínir frá Deutschland jawohl!“

 

„5. Bleiki Bamix töfrasprotinn minn en muna að taka úr sambandi strax og maður er búinn að nota hann og áður en maður fer að hreinsa!!!!!!!! - Svo ekki fari puttar af eða öllu verra tunga.“

 

„6. Nýja litla kopar pressukannan mín - fæ mér oft kaffii í kaffinu með sætum mola .. ég er alveg ferleg!!!“

Kopar könnuna keypti Ebba í Suður-Afríku.
Kopar könnuna keypti Ebba í Suður-Afríku. mbl.is/

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert