Hvar eru bestu tilboðin?

KitchenAid er meðal þess sem hægt er að kaupa á …
KitchenAid er meðal þess sem hægt er að kaupa á tilboði í dag. Ljósmynd/KitchenAid

Það er svartur föstudagur í dag sem þýðir að hægt er að gera góð kaup ansi víða. Matarvefurinn renndi yfir það helsta og þetta er það sem fangaði athygli okkar.

Eva Solo pottarnir eru með 25% afslætti í dag.
Eva Solo pottarnir eru með 25% afslætti í dag. mbl.is/Eva Solo

Húsgagnahöllin er með 25% afslátt af öllu. Það þýðir að öll undurfögru stellin og aukahlutirnir eru á tilboði. Hvað okkur langar helst í? Þennan forláta Eva Solo-pott sem hægt er að setja inn í ofn. Hann er ígildi steypujárnspotts en er fisléttur. Á myndinni er þriggja lítra pottur sýndur en hann kostar í dag 17.992 en kostar fullu verði 23.990.

Rafha er með allskonar tilboð og þar með talið á KitchenAid. Í boði eru þrír litir af Artisan-týpunni góðu. Hún ætti að kosta fullu verði 84.990 krónur en kostar í dag 67.676 krónur sem er frábær afsláttur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Húsasmiðjan býður 30% afslátt af pottum, pönnum, hnífum, hnífapörum og öllum smáraftækjum frá Electrolux og Russel Hobbs. Einnig eru þeir með 40% afslátt af bökunarvörum.

Hægt er að fá KitchenAid hrærivélar á dúndur tilboði í …
Hægt er að fá KitchenAid hrærivélar á dúndur tilboði í dag. Best er verðið í Nettó. mbl.is/KitchenAid

Nettó býður svartar og rauðar KitchenAid-vélar á 59.900 krónur en einungis eru 120 stykki í boði.

Uppfært: Rafland býður líka KitchenAid á 59.900 krónur en mun fleiri liti.

Hjá Byggt og búið eru líka ýmis frábær tilboð í gangi. Meðal annars KitchenAid-segulblandari með 62% afslætti eða á 29.995 kr. í stað 79.995 kr.

Kúnígúnd er með ýmis góð tilboð, þar á meðal hágæða pottasett með 50% afslætti.

Hægt er að fá Iittala glös og matarstell með 20% …
Hægt er að fá Iittala glös og matarstell með 20% afslætti í Iittala búðinni í Kringlunni. mbl.is/Iittala

Ittala búðin er með 20% afslátt af öllum glösum og matarstellum.

Rafland er með 50% afslátt af KitchenAid blöndurum.

Duka er með 15% afslátt af öllum vörum.

Allnokkrar gerðir Vitamix blandara eru á tilboði.
Allnokkrar gerðir Vitamix blandara eru á tilboði.

Kælitækni er með 30%-36% afslátt af Vitamix blöndurum. Ekki öllum gerðum en flestum þó. Tilboðið gildir fram að jólum og er því eignlegt jólatilboð en við máttum til með að birta það hér engu að síður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert