Það er fátt meira viðeigandi á þessum mánudegi en dásamleg pítsa sem er ekki bara stórkostlega góð heldur einnig afbragðsholl og nauðsynleg tilbreyting frá helgarmatnum og smákökunum.
Það er Hanna Þóra sem á heiðurinn af þessari uppskrift en inni á blogginu hennar er að finna ítarlegri lýsingar á aðferðinni við botninn.
Frábær blómkálspizza – fljótleg og sérstaklega góð
Sá þessa uppskrift að blómkálspizzu í erlendu tímariti. Fannst hún spennandi en hún er svo miklu meira en það – þessi pizza er sérstaklega bragðgóð, fljótleg og það kom skemmtilega á óvart að hún er líka barnvæn. Unga fólkinu fannst hún mjög góð.
Hráefni
Pizzubotnar
- 500 – 600 g ferskt blómkál
- 1 tsk. gróft salt
- 1 dl rifinn ostur
- 1 msk. husk (má einnig nota innihald úr 2 hylkjum – þessu má sleppa)
- 1 egg
- 1 tsk. oregano
- 1 tsk. Italian seasoning
- Svartur pipar
- 1 msk. olía – til penslunar (má sleppa)
Ofan á – frjálst val – hugmyndir
- Rifinn ostur
- 1 – 1½ dl pizzusósa – Heimagerð pizzusósa
- Mosarellaostur – skorinn í sneiðar
- Salamísneiðar
- Kapris
- Grænt pestó
- Rjómaostur/geitaostur
- Fíkjur – skornar í sneiðar (á sérstaklega vel við geitaost)
- Skraut eftir bakstur: T.d. ferskir, litlir tómatar, rifinn parmesanostur og/eða klettasalat
Verklýsing
Pizzubotnar
- Blómkál maukað mjög smátt í matvinnsluvél.
- Salti blandað saman við og látið standa í 10 mínútur. Maukið sett í sigti, sigtipoka eða látið síast í gegnum grisju. Vökvinn undinn úr (annars verður botninn of blautur).
- Ofninn hitaður 225°C.
- Allt hráefni sett í skál og því blandað saman.
- Maukinu skipt á tvo bökunarpappíra (penslað með olíu á pappírinn – ekki nauðsynlegt) og flatt út með kökukefli eða fingrunum – best að nota bökunarpappír á milli svo að klístrist sem minnst.
- Pizzurnar bakaðar í ofninum í u.þ.b. 15 mínútur – látnar kólna.
- Áleggið sett ofan á og bakað áfram í ofninum í 9 – 11 mínútur. Best að baka pizzurnar á grind þannig að vel lofti undir þær.
Geymsla
Pizzurnar eru bestar nýbakaðar en þær eru líka mjög fínar daginn eftir – hita þær aðeins.