Lífsbætandi Maltesers ostakaka

mbl.is/Hjördís Dögg

Sumt er hreinlega of girnilegt til að vera satt og þessi Maltesers ostakaka er klárlega þar á meðal. Kakan hreinlega kallar á ilvolg og sólrík sumarkvöld þar sem setið er úti með teppi og lífsins notið. 

Það er Hjördís Dögg Grímarsdóttir á Mömmur.is sem á heiðurinn að þessari snilld sem engan ætti að svíkja. 

Maltesers ostakaka

  • 2 pokar Maltesers
  • 50 g íslenskt smjör – brætt
  • 60 g sykur

Fylling:

  • 250 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 100 g flórsykur
  • 200 g rjómaostur frá Gott í matinn
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 2 stk. marssúkkulaði – brytjað
  • 10 stk Malteserskúlur

Marssósa:

  • 3 stk. mars
  • 1/2 dl rjómi frá Gott í matinn

Aðferð:

  1. Myljið Malteserskúlurnar í matvinnsluvél.
  2. Blandið sykri og bræddu smjöri saman við.
  3. Setjið blönduna í smurt bökunarform eða eldfastmót og þrýstið henni í mótið og upp með brúninni.
  4. Þeytið rjómann og blandið rjómaosti saman við ásamt flórsykri og vanillusykri.
  5. Hrærið blönduna vel og hellið í mótið.
  6. Setjið Malteserskúlur hér og þar í fyllinguna ásamt brytjuðu marssúkkulaði.
  7. Búið til marssósuna með því að hita marssúkkulaðið og rjóma.
  8. Hellið marssósunni síðan yfir fyllinguna.
  9. Kælið kökuna í frysti í nokkra klukkutíma.
  10. Berið kökuna fram kalda. Kemur mjög vel út að sáldra muldu Maltesersi yfir kökuna.
mbl.is/Hjördís Dögg
mbl.is/Hjördís Dögg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert