Dularfullur uppruni Mix afhjúpaður

„Það er orðinn langur tími síðan þessi bók var gefin út, yfir tíu ár. Við tókum þessu líklega ekki nógu alvarlega í byrjun, en þessi gosdrykkur er enn framleiddur, nú hjá Ölgerðinni, og okkur rann blóðið til skyldunnar,“ segir Valgerður Valdemarsdóttir.

Valgerður og systkini hennar, Þórhildur, Hólmgeir og Baldvin, eru ósátt við hvernig saga af tilurð hins vinsæla gosdrykkjar Mix hefur verið afbökuð á seinni árum. Mix varð til í gosdrykkjaverksmiðju föður þeirra en hefur gjarnan verið eignað annarri verksmiðju. Telja þau að ástæðuna megi meðal annars rekja til umfjöllunar og frásagnar sem birtist í fimmta bindi Sögu Akureyrar bls. 160-161. „Við settum okkur í samband við söguritara Sögu Akureyrar og sendum honum greinargerð okkar um raunverulegan uppruna Mixins og í ljós kom að heimildamaður hans hafði gefið honum upplýsingar sem ekki voru byggðar á staðreyndum. Því miður birtist þetta í síðasta bindi af Sögu Akureyrar og því ekki um það að ræða að birta leiðréttingu í næsta bindi. Söguritari hefur hins vegar boðið okkur að frásögn okkar, um hinn raunverulega uppruna Mixins, verði birt í tímaritinu Súlum. Sem betur fer vita margir Akureyringar hver hin rétta útgáfa af sögunni er,“ segir Valgerður.

Hrólfur Baldursson

Þau systkin segja að hin ranga frásögn úr Sögu Akureyrar, um uppruna Mixins, hafi síðan verið endurómuð í lítt breyttri mynd í grein sem Dr. Gunni skrifaði í Fréttablaðið árið 2010. Þar segir að Mixið hafi orðið til í Efnagerðinni Flóru og Björgvin Júníusson hafi þar náð að blanda góðan drykk sem hann kallaði Skítamix. Það nafn hafi hins vegar þótt ótækt og niðurstaðan hafi orðið að kalla drykkinn einfaldlega Mix. „Hvort heimildir fyrir þessari sögu eru fengnar úr sögu Akureyrar eða annars staðar frá vitum við ekki, en þarna er eins og áður um hreinan skáldskap að ræða,“ segir Valgerður.

„Á Akureyri var á þeim tíma sem þarna er rætt um starfrækt önnur og stærri gosdrykkjaverksmiðja en Flóra. Sú verksmiðja átti uppruna sinn að rekja til Siglufjarðar og hét þá Efnagerð Siglufjarðar, stofnuð 1939, þar sem framleiddir voru gosdrykkir og efnagerðarvörur. Verksmiðja þessi var síðan flutt til Akureyrar árið 1945 og var þá nafni félagsins breytt í Efnagerð Akureyrar og síðar í Sana, en það nafn hafði lengi verið notað á framleiðsluvörur fyrirtækisins,“ segir í greinargerð sem systkinin hafa tekið saman. Þau rekja að árið 1958 hafi faðir þeirra, Valdemar Baldvinsson, og félagar hans, Jón M. Jónsson og Skarphéðinn Ásgeirsson, fest kaup á verksmiðjunni. Faðir þeirra var sá eini af eigendunum sem vann við verksmiðjuna og var þar framkvæmdastjóri að sögn systkinanna.

Hrólfur Baldursson

„Á Siglufirði var Valash uppistaðan í gosdrykkjaframleiðslunni en Morgan Cream Soda var einnig framleitt þar og ýmsar fleiri tegundir. Á Akureyri bættust við nýjar tegundir svo sem Jolly Cola, sem var danskt að uppruna. Þá var haldið áfram með Valash og Morgan Cream Soda og svo komu fleiri tegundir í viðbót og þar á meðal var drykkur sem nefndur var Mix.

Segja má að uppruni þess hafi verið nokkurs konar tilviljun en það atvikaðist þannig að við framleiðslu á Valash var notað innflutt appelsínuþykkni enda var sá drykkur danskur að uppruna. Nú gerðist það eitt sinn að mistök urðu í sendingu þannig að í stað appelsínuþykknis kom ananasþykkni. Þá voru góð ráð dýr, hvað átti að gera við þetta ananasþykkni? Því björguðu Indriði Jakobsson, sem var verkstjóri í framleiðslunni, og Þórhildur Valdemarsdóttir sem þar starfaði einnig. Þau tóku sig saman og blönduðu þessu ananasþykkni saman við annað ávaxtaþykkni og útkoman varð blanda sem þau nefndu Mix. Þetta þótti snjallt nafn og Mixið naut strax vinsælda og seldist vel,“ segir í greinargerð systkinanna.

Mix í áranna rás

Í safni Þórs Jóhannssonar á Siglufirði er að finna mikið af gömlum miðum af drykkjarflöskum. Útlit umbúða Mix hefur greinilega tekið miklum breytingum frá upphafi.

Frá Efnagerð Akureyrar til Ölgerðarinnar

Mix varð til í kringum 1960 og var í fyrstu framleitt í Efnagerð Akureyrar. Síðar ákváðu eigendur efnagerðarinnar að einbeita sér að gosdrykkjaframleiðslu og þá breyttist nafn verksmiðjunnar í Sana. Árið 1978 sameinuðust Sanitas og Sana. Þá var einnig farið að framleiða Mix í verksmiðju Sanitas við Köllunarklettsveg og gosið kom inn á markað í Reykjavík. Eftir að Sanitas lagði upp laupana keypti Ölgerðin Gosan, sem var gosdrykkjahluti fyrirtækisins, árið 1992. Hefur Ölgerðin framleitt Mix síðan. Á þessum tíma hefur útlit Mix tekið nokkrum breytingum. Um tíma voru tvær ávaxtafígúrur áberandi í kynningarefni gosdrykkjarins. Þær kölluðust Kátur og Hress.

Sumarið 2008 setti Ölgerðin systurdrykkinn Remix á markað. Hann var appelsínugulur að lit en þótti svipaður á bragðið. Remix varð skammlíft.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert