Byggðu draumahúsið út í sveit

Fallegt Vipp eldhús í glæstu sumarhúsi rétt fyrir utan New …
Fallegt Vipp eldhús í glæstu sumarhúsi rétt fyrir utan New York. mbl.is/Eric Petschek

Í nokkurra klukkustunda fjarlægð frá heimsborginni New York, hefur fjögurra manna fjölskylda fundið sveitakyrrðina í Catskill fjöllum og byggt hreint út sagt geggjað sumarhús. 

Hér búa arkitektahjón með tvær unglingsdætur, þegar þau þrá rólegheit frá stórborginni. Það tók hjónin um sex mánuði að byggja húsið sem er 185 fermetrar að stærð, og aðra sex mánuði til að klára allt innviði. 

mbl.is/Eric Petschek

Húsið hefur að geyma tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofu, borðstofu og opið eldhús. Hjónin sóttust eftir opnu eldhúsrými þar sem gluggarnir fengju að njóta sín og það leiddi þau til að velja frístandandi Vipp V1 eldhús - sem er einstaklega glæsilegt. Eins hönnuðu þau sjálf og smíðuðu elhúsborðið úr birki krossviði sem gefur eldhúsinu enn meiri sjarma. 

mbl.is/Eric Petschek
mbl.is/Eric Petschek
mbl.is/Eric Petschek
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert