Baðvaskur Kim Kardashian vekur furðu

Við höfum stórkostlega gaman af því þegar internetið fer bókstaflega á hliðina af völdum Kim Kardashian sem ætti með réttu að prýða orðabækur heims við hlið orðsins áhrifavaldur.

Svo mikil eru áhrif hennar að 12 ára dóttir mín sagði við mig áðan „ég skil ekki hvernig vaskurinn hjá Kim virkar.“

Og það er einmitt ástæða þess að heimsbyggðin er á hliðinni í dag. Kim birti svipmyndir frá baðherberginu sínu á dögunum og þar sjást baðvaskarnir á heimilli hennar í Hidden Hills í Los Angeles.

Vaskarnir eru stórbrotnir og við skiljum eiginlega ekki af hverju allir vaskar eru ekki svona. Að sögn Kim á fyrrverandi eiginmaður hennar, Kanye West eða YE, heiðurinn að hönnun þeirra en þeir voru hugmynd hans og útfærðir í samráði við Axel Vervoordt og Claudio Silvestrin.

Hér má sjá myndband sem sýnir vaskinn. Flottur er hann!

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert