Vetrarpottréttur með grænum linsum og kartöflum

Hinn fullkomni vetrarréttur fyrir alla.
Hinn fullkomni vetrarréttur fyrir alla. Ljósmynd/Gerum daginn girnilegan

Veturinn er árstíðin sem kallar á matarmiklar súpur og pottrétti. Þetta má kannski kalla súpu en því lengur sem hún stendur í pottinum verður hún að pottrétti þar sem linsurnar halda áfram að draga í sig vökvann og verður rétturinn því matarmikill. Grænar linsur eru ótrúlega skemmtilegar því þær halda forminu sínu og verða ekki að mauki sem er mikill kostur. Þær er því líka hægt að nota í köld salöt og passa vel þar. Hér erum við með hinn fullkomna hversdagspottrétt og það er bónus að hráefnið er ódýrt, mettandi og að sjálfsögðu nærandi sem skiptir öllu máli. Grunnuppskriftin býður upp á breytilega kryddmöguleika og þið getið gert súpuna að ykkar. Þessi dásamlega uppskrift er fengin á uppskriftavefnum Gerum daginn girnilegan.

Vetrarpottréttur með grænum linsum og kartöflum

Fyrir 4

  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 tsk. broddkúmen
  • 2 stk. lárviðarlauf
  • 1 stk. gulur laukur
  • 3 stk. hvítlauksrif
  • 600 g kartöflur
  • 2 msk. jurtakraftur, ég nota lífrænan og gerlausan frá Rapunzel
  • 1,60 l vatn
  • 3 dl lífrænar grænar linsur frá Rapunzel
  • 100 g spínat
  • 100 g grænkál
  • 30 g steinselja
  • Jurtasalt eftir smekk
  • ½ tsk. garamasala
  • 1 tsk. indverskt karrí
  • ⅛ tsk. kanill

Aðferð:

  1. Byrjið á að hita olíu í potti við vægan hita og bætið svo broddkúmeni og lárviðarlaufi út í.
  2. Þegar broddkúmenið byrjar aðeins að skoppa til í pottinum er söxuðum lauknum, rifnum hvítlauk og smátt skornum kartöflum bætt út í pottinn.
  3. Hrærið stanslaust í pottinum í smá stund.
  4. Bætið vatninu, linsunum, jurtakrafti og kryddum í pottinn og leyfið að malla á miðlungshita í um það bil 20 mínútur eða þar til linsurnar og kartöflurnar eru orðnar mjúkar.
  5. Einnig er hægt að bíða með kryddin þar til eftir þetta skref ef þú vilt smakka og meta hvort þ viljið prófa ykkur áfram með önnur krydd.
  6. Bætið nú smátt skornu grænkáli, spínati og steinselju út í pottinn og leyfið því að hitna og mýkjast í 1-2 mínútur.
  7. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert