Þessi súpa er himnesk, bragðið og áferðin fljúga með bragðlaukana í hæstu hæðir. Heiðurinn af þessari uppskrift eiga mæðgurnar Solla Eiríks og Hildur Ársælsdóttir en hægt er að fylgjast með mægðunum hér. Á þessum árstíma er ávallt gott að ylja sér við heita súpur sem rífa í og bjóða upp á skemmtilega matarupplifun fyrir bragðlaukana.
Kókos- og karrísúpa
Fyrir 3-4
- 2 msk. kókosolía
- 2 hvítlauksrif
- 3 límónulauf
- 1 sítrónugras stöngull
- 200 g hvítkál, niðursneitt
- 2 gulrætur, skornar í þunnar sneiðar
- 100-200 g sætar kartöflur, skornar í bita
- 100 g kartöflur, skornar í bita
- 100 g blómkál, skorið í litla bita
- 2 msk. rautt thai curry paste
- 1 msk. tómatpúrra
- 1 msk. grænmetiskraftur
- 1 tsk. sjávarsalt
- 2 dósir kókosmjólk (800 ml)
- 250 ml vatn
Ofan á súpuna
- ½ rauðlaukur, skorinn í þunna strimla og steiktur á pönnu
- ½ paprika, skorin í bita og steikt á pönnu
- Ferskur kóríander, saxað eftir smekk
- Sítrónubátar
- Ristaðar kasjúhnetur
Aðferð:
- Byrjið á að skera grænmetið niður.
- Hitið olíu í potti og steikið hvítkál, hvítlauk, límónulauf og sítrónugrasstöngul í 2-3 mínútur.
- Bætið afganginum af grænmetinu út í og steikið í 2-3 mínútur í viðbót.
- Bætið currypaste, grænmetiskrafti og tómatpúrru út í og hrærið.
- Setjið að lokum kókosmjólkina og vatnið út í og látið nú sjóða í 12-15 mínútur eða þar til grænmetið er eldað í gegn.
- Ef ykkur finnst vanta meiri vökva í súpuna getið þið bætt við kókosmjólk eða vatni eða tómatpassata.
- Á meðan súpan en að malla er gott að steikja laukinn og paprikuna, leyfa því að verða gyllt og sætt.
- Bætið sítrónubátunum út á pönnuna með lauknum og paprikunni og leyfið að vera í nokkrar mínútur.
- Setjið súpuna í skálar og toppið með laukblöndunni, ferskum kóríander og ristuðum kasjúhnetum.