Þetta er dásamlegt rækjusalat sem er aðeins öðruvísi en þetta klassíska og kemur úr smiðju Hildar Rutar Ingimarsdóttir, matarbloggara hjá Trendnet. Það inniheldur risarækjur, egg, Heinz majónes, steinselju, salt og pipar. Það er skemmtileg tilbreyting að nota risarækjur en þær eru skornar smátt sem gerir áferðina svo góða. Hildur Rut mælir með að bera salatið fram á ristuðu súrdeigsbrauði eða öðru góðu brauði með avókadó og sítrónusafa.
Rækjusalat með risarækjum
- 350 g frosnar risarækjur
- Ólífuolía
- 5 soðin egg
- 1/2–1 dl Heinz majónes (eða eftir smekk)
- Chili-flögur, salt og pipar
- 1 msk. fersk steinselja
- Gott brauð (t.d. súrdeigsbrauð)
- Avókadó
- Sítrónusneiðar
- Steinselja
Aðferð:
- Byrjið á því að afþíða risarækjurnar.
- Dreifið þeim á ofnplötu þakta bökunarpappír og hellið ólífuolíu, chili-flögum, salti og pipar eftir smekk.
- Bakið inni í ofni við 180°C hita í 5-6 mínútur eða þar til rækjurnar eru eldaðar í gegn.
- Setjið egg, risarækjur, majónes, salt, pipar og steinselju á skurðarbretti og skerið smátt. Bætið við majónesi eftir smekk.
- Berið fram á góðu brauði með avókadó, sítrónusneiðum og skreytið með steinselju.
- Njótið hvers bita.