Bestu þorskhnakkarnir í hvítlauksrjómaostasósu

Þetta eru bestu þorskhnakkarnir í hvítlauksrjómaostasósu sem þið eigið eftir …
Þetta eru bestu þorskhnakkarnir í hvítlauksrjómaostasósu sem þið eigið eftir að elska. Ljósmynd/Linda Ben

Þessi fiskréttur er einstaklega djúsí og mjög seðjandi og mun afsanna þá kenningu að fiskur sé ekki góður ef einhver heldur því fram. Sósan líkist meira sósu sem maður er vanur að fá með rjómapasta heldur en fisk. Fiskurinn sjálfur er steiktur með kryddhveitihjúp sem gerir hann virkilega góðan. Uppskriftin kemur úr smiðju Lindu Ben uppskriftahöfundar sem heldur úti síðunni Linda Ben.

Linda bar þorskinn fram með ofnbökuðu graskeri og smjörsteiktu rósakáli og segist vel geta mælt með því meðlæti. Til þess að útbúa graskerið byrjaði Linda á að skera það í helming, fræhreinsa það og skræla börkinn af. Síðan skar hún það í sneiðar, setti í eldfast mót með ólífuolíu og salti og bakaði í 200°C heitum ofni í 30 mínútur. Smjörsteikta rósakálið gerði hún með því að skera það í helminga, setja vel af smjöri í pönnu með loki og steikja það á öllum hliðum þar til mjúkt í gegn. Síðan er líka hægt að bera réttinn fram með fersku salati að eigin vali.

Þorskhnakkar í hvítlauksrjómaostasósu

  • 1 kg þorskhnakkar
  • 1 egg
  • 200 g hveiti
  • ½ msk. paprikukrydd
  • Salt og pipar eftir smekk
  • ½ msk. oreganó
  • 3 msk. smjör (skipt í nokkra hluta)
  • ½ laukur
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 250 g sveppir (má sleppa)
  • 350 ml rjómi
  • ½ sveppakraftur (teningur)
  • 150 g hvítlauksostur
  • Fersk steinselja (má sleppa)

Aðferð:

  1. Skerið þorskhnakkana niður í þægilega stóra bita.
  2. Hrærið eggið saman í skál.
  3. Setjið hveiti, paprikukrydd, salt, pipar og oreganó í skál, hrærið saman.
  4. Veltið þorskhnökkunum fyrst upp úr egginu og svo hveitiblöndunni. Setjið smjör á pönnuna og steikið þorskinn upp úr smjöri á báðum hliðum þar til hjúpurinn er orðinn gullin brúnn og fiskurinn eldaður í gegn.
  5. Á meðan þorskurinn er að steikjast, skerið þá laukinn, hvítlaukinn og sveppina smátt niður.
  6. Steikið í potti upp úr smjöri, þegar sveppirnir og laukurinn er orðinn mjúkur í gegn, bætið þá rjómanum út í og sveppakraftinum.
  7. Rífið hvítlaukskryddostinn út í og kryddið með salti og pipar.
  8. Látið malla þar osturinn hefur bráðnað saman við.
  9. Hellið sósunni þá yfir þorskinn á pönnunni, dreifið ferskri steinselju yfir.
  10. Berið fram á fallegan hátt með því sem ykkur þykir gott.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert