Gullfalleg fermingarveisla í anda Sylvíu Sigrúnar

Sylvía Sigrún Eðvarðsdóttir fermdist 24. mars síðastliðinn og bauð til …
Sylvía Sigrún Eðvarðsdóttir fermdist 24. mars síðastliðinn og bauð til veislu ásamt fjölskyldu sinni. Hún valdi þemað og kræsingarnar sem heilluðu hana mest. Ljósmynd/Thelma Haraldsdóttir

Þegar fermingarveislu skal gjöra er margt sem þarf að hafa í huga, hvað varðar val á veitingum, þema og að persónuleiki fermingarbarnsins fái að njóta sín. Sylvía Sigrún Eðvarðsdóttir fermdist í Árbæjarkirkju 24. mars síðastliðinn og í tilefni þess bauð hún til veislu ásamt foreldrum sínum, sem var í hennar anda.

Hún fékk að ráða þemanu í veislunni og koma með sínar tillögur að veitingum. Einnig valdi hún fermingarkjólinn sinn sjálf og út frá litunum í honum voru litir veislunnar hafðir í forgrunni.

„Dagurinn var bjartur og fallegur, athöfnin dásamleg og veislan vel heppnuð í alla staði,“ segir Sylvía Sigrún og brosir sínu fallega brosi.

Sylvía Sigrún með fjölskyldu sinni, stjúppabbi hennar Benedikt Stefánsson, Ísold …
Sylvía Sigrún með fjölskyldu sinni, stjúppabbi hennar Benedikt Stefánsson, Ísold Anna Benediktsdóttir, Benedikt Nóel Benediktsson, mamma Sylvíu, Þorbjörg Pétursdóttir, Sylvía Sigrún, Henry Eðvarðsson, pabbi Sylvíu Eðvarð Þór Hackert, Guðmunda Pálmadóttir og tvíburasynir hennar Kristófer og Karl Eðvarðssynir. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir

Bauð upp á girnilega smárétti og fallegar kökur og sæta bita

Sylvía Sigrún er einstaklega skipulögð og hafði ánægju af því að undirbúa veisluna með fjölskyldum sínum.

„Ég var búin að ákveða dagsetninguna með góðum fyrirvara, bæði til að geta fermst sama dag og vinkonur mínar í skólanum og líka til að vera viss um að fá sal fyrir veisluna. Varðandi veitingar í veislunni vildi ég hafa smárétti og það eina sem ég var búin að ákveða var að hafa kjúklingaspjót með satay-sósu. Kokkurinn hjálpaði okkur svo að fá hugmyndir fyrir hina réttina, en ég vildi hafa eitthvað einfalt, bragðgott og girnilegt. Ég bauð upp á smáhamborgara, gömlu góðu týpuna, með osti, hamborgarasósu, gúrku, tómötum og káli. Einnig vorum við með kjúklinga-taco með ananas-salsa, djúpsteikt blómkál með kóreskri BBQ-sósu, tómata og carpaccio á crostini, nýbakað foccacia með pesto og mini-pizzur. Eftir matinn buðum við upp á kaffi, kökur og sæta bita. Stjúpmamma mín gerði rosalega fallega og bragðgóða rice krispies-kransaköku og steikti alvöru íslenskar pönnukökur. Mamma mín bakaði sítrónukökur og svo fengum við Gulla Arnar til að gera svakalega súkkulaðiköku og sæta bita sem slá alltaf í gegn,“ segir Sylvía.

Skrautboginn gerði mikið fyrir veisluborðið, hreint dýrðlegt að sjá hvað …
Skrautboginn gerði mikið fyrir veisluborðið, hreint dýrðlegt að sjá hvað blöðrur og lifandi blóm geta gert fallega umgjörð þegar veislu skal gjöra. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir

Amma mín og afi fundu fallegt hálsmen og kross

Aðspurð segir Sylvía Sigrún að undirbúningurinn fyrir fermingarveisluna hafi hafist fyrir alvöru í janúar, febrúar á þessu ári. „Ég þurfti að bóka hárgreiðslu, neglur, finna rétta kjólinn og skó, skartgripi, bóka myndatöku og finna rétta staðinn fyrir fermingarmyndatöku. Svo small þetta allt saman á síðustu vikunum fyrir fermingardaginn. Ég fékk mikla hjálp frá fjölskyldunni minni við að gera daginn fullkominn, meira að segja amma mín og afi fundu rosalega fallegt hálsmen og kross á Tenerife.“

Litaþemað hvítt, fjólublátt og gyllt

Þegar kom að því að velja þema veislunnar var Sylvía Sigrún með á hreinu hvað hana langaði að hafa enda mikill fagurkeri.

„Ég vildi velja litaþemað út frá kjólnum, þannig að fyrsta skrefið var að finna hann. Ég fann fullkominn, lítið notaðan kjól frá Yeoman með fjólubláu og grænu mynstri og þá voru litirnir fundnir; hvítur, fjólublár og að sjálfsögðu gyllt með. Við fórum í Partýbúðina og völdum skraut, blöðrur, dúka og renninga. Þar var hægt að fá allt til að gera veisluna akkúrat eins og ég hafði hugsað mér. Á leigunni hjá Partýbúðinni bókuðum við líka myndaskjá (selfie booth) og fallegan bakgrunn. Það sló í gegn. Við fengum líka skrautboga sem við skreyttum með blöðrum og blómum. Ég fékk blómin í Blómagalleríi en þau voru einföld og látlaus; grænar greinar og hvítt brúðarslör, mér þykir það svo fallegt. Fermingarkertið og gestabókina gerðu Karmelnunnurnar í Hafnarfirði fyrir mig, það kom einstaklega fallega út í gylltu og fjólubláu.“

Fermingarkertið og gestabókina gerðu Karmelnunnurnar í Hafnarfirði, það kom einstaklega …
Fermingarkertið og gestabókina gerðu Karmelnunnurnar í Hafnarfirði, það kom einstaklega fallega út í gylltu og fjólubláu. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir

Gæti ekki verið ánægðari með útkomuna

Sylvíu Sigrúnu langaði að vera búin að fara í fermingarmyndatöku fyrir stóra daginn til að geta sýnt þær í veislunni og það gekk eftir.

„Ég átti tíma í prufugreiðslu 10 dögum fyrir fermingardaginn og nýtti tækifærið til að taka fermingarmyndir og myndir með fjölskyldunni. Alma Hlín hjá Mio Mio greiddi mér og Telma Haraldsdóttir tók myndirnar og ég gæti ekki verið ánægðari með útkomuna. Við fengum fallegan dag í Hörpu og Telma tók æðislegar myndir af okkur,“ segir Sylvía og bætir við að myndirnar séu dýrmætar minningar.

Þegar Sylvía Sigrún er spurð hvaða henni hafi fundist standa upp úr var hún með það á hreinu. „Það sem stóð upp úr á fermingardaginn var hversu fallegur dagurinn var og hversu margir sáu sér fært að mæta og fagna með mér. Þetta var svo skemmtilegur dagur og gaman að útkoman hafi verið svona flott,“ segir Sylvía Sigrún sem má svo sannarlega vera ánægð með útkomuna enda gullfalleg fermingarveisla sem hún og fjölskylda hennar buðu vinum og vandamönnum upp á.

Veisluborðið var mikilprýði í veislunni, veitingarnar, litaþemað og lifandi blómin …
Veisluborðið var mikilprýði í veislunni, veitingarnar, litaþemað og lifandi blómin mynduðu fallega heildarmynd á borðinu. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Móðir Sylvíu Sigrúnar bakaði sítrónukökur og stjúpmóðir hennar fallega og …
Móðir Sylvíu Sigrúnar bakaði sítrónukökur og stjúpmóðir hennar fallega og bragðgóða rice krispies-kransaköku og steikti alvöru íslenskar pönnukökur fyrir fermingarkaffihlaðborðið. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Sætu bitarnir hans Gulla Arnars fanga bæði augu og munn. …
Sætu bitarnir hans Gulla Arnars fanga bæði augu og munn. Hreinn unaður að horfa og njóta. Ljósmynd/Telma Haralds
Sylvía Sigrún bauð m.a. upp á smáhamborgara, gömlu góðu týpuna, …
Sylvía Sigrún bauð m.a. upp á smáhamborgara, gömlu góðu týpuna, með osti, hamborgarasósu, gúrku, tómötum og káli. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Sítrónukökurnar voru stílhreinar skreyttar með ferskum jarðarberjum og flórsykri. Brúðarslörið …
Sítrónukökurnar voru stílhreinar skreyttar með ferskum jarðarberjum og flórsykri. Brúðarslörið passa vel á veisluborðinu. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Kjóllinn sem Sylvía Sigrún valdi sér frá Yeoman var með …
Kjóllinn sem Sylvía Sigrún valdi sér frá Yeoman var með fjólubláu og grænu mynstri, hvítur, fjólublár og gyllt með og var það litaþema veislunnar. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Efst á óskalista fermingarbarnsins þegar koma að eftirréttum var girnileg …
Efst á óskalista fermingarbarnsins þegar koma að eftirréttum var girnileg ekta súkkulaðikaka með áletrun og skreytt með ferskum berjum og rice krispies súkkulaði kransakaka. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Á pakkaborðinu var fallegur kassi sem Sylvía Sigrún fékk í …
Á pakkaborðinu var fallegur kassi sem Sylvía Sigrún fékk í Partýbúðinni, hvítur með litaþema veislunnar sem var djásnið á borðinu ásamt lifandi blómum og myndum. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Sætu bitirnar og kransakakan skörtuðu sínu fegursta.
Sætu bitirnar og kransakakan skörtuðu sínu fegursta. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Henry litli bróðir Sylvíu Sigrúnar hafði dálæti af kræsingunum á …
Henry litli bróðir Sylvíu Sigrúnar hafði dálæti af kræsingunum á borðinu. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Skrautboginn kom fallega út skreyttur með blöðrum og lifandi blómum.
Skrautboginn kom fallega út skreyttur með blöðrum og lifandi blómum. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Kjúklinga-taco með ananas-salsa.
Kjúklinga-taco með ananas-salsa. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Brúðarslörið geri allt svo fallegt.
Brúðarslörið geri allt svo fallegt. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Sylvía Sigrún var glæsileg á fermingardaginn.
Sylvía Sigrún var glæsileg á fermingardaginn. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Gullfallegur skrautbogi.
Gullfallegur skrautbogi. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Fermingarmyndirnar af Sylvíu Sigrúnu tók Telma Haralds í Hörpu, virkilega …
Fermingarmyndirnar af Sylvíu Sigrúnu tók Telma Haralds í Hörpu, virkilega fallegar myndir af fermingarstúlkunni. Ljósmynd/Telma Haraldsdóttir
Sylvía Sigrún við rósavegginn, bakgrunninn, sem hún valdi í Partýbúðinni …
Sylvía Sigrún við rósavegginn, bakgrunninn, sem hún valdi í Partýbúðinni fyrir myndaskjáinn.
Yngri kynslóðin var iðin við að mynda sig við rósavegginn …
Yngri kynslóðin var iðin við að mynda sig við rósavegginn sem heillaði. Benedikt Nóel Stefánsson og Sjöfn Þorbjörg Þorvarldsdóttir nutu sín að taka myndir af sér.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert