Morgunverðarommelettur í bollaköku útgáfu

Þessar eru fullkomnar að njóta á sunnudagsmorgnu.
Þessar eru fullkomnar að njóta á sunnudagsmorgnu. Ljósmynd/Jana

Þessar litlu morgunverðarommelettur eru ótrúlega góðar og krúttlegar.  Gaman er að bera þessar fram á morgunverðarbakka upp í rúm og njóta og bjóða upp á góðan drykk með. Kristjana Steingrímsdóttir, Jana heilsumarkþjálfi, töfraði þessar fram á dögunum og þær koma svo ljómandi vel út að það er vel hægt að mæla með þeim. Blönduna má líka setja í eldfast mót og búa til ljúffenga eggjaböku ef vill. Jana heldur úti Instagram-síðunni hér þar sem hægt er að finna mikið úrval af girnilegum uppskriftum.

Hinn fullkomi morgunverður þegar á að gera vel við sig.
Hinn fullkomi morgunverður þegar á að gera vel við sig. Ljósmynd/Jana

Litlar ommelettur í bollaköku formi

  • 5-6 egg
  • 1 tómatur, skorinn í litla bita
  • ½ búnt ferskt basil, saxað gróft
  • ½ búnt steinselja eða aðrar ferskar kryddjurtir, saxaðar gróft
  • 1 msk. sólblómafræ
  • 1 msk. hampfræ
  • 2 msk. salatostur/fetaostur í litlum bitum
  • 1 tsk. Gullkryddblanda
  • 1 tsk. Miðausturlanda kryddblanda (má vera annað krydd sem þið elskið)
  • Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C hita.

Byrjið á því að píska saman eggin í góðri skál.

Setjið síðan allt hráefnið í skálin og hrærið öllu vel saman.

Hellið í bollakökuform, getið notað silíkon-form þá losna ommeletturnar vel úr forminu eftir bökun eða sett í hefðbundin bollakökuform.

Setjið inn í ofn og bakið í um það bil 14-16 mínútur.

Takið úr forminu og berið fram á falllegan hátt með því sem hugurinn girnist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert