Svívirðilega góður núðluréttur með lambakjöti

Asískur núðluréttur með lambakjöti.
Asískur núðluréttur með lambakjöti. Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Einfaldir og fljótlegri réttir eru ávallt vinsælir í upphafi vikunnar. Hér er einn alveg svívirðilega góður núðluréttur með lambakjöti sem hakar í öll box. Uppskriftin kemur af uppskriftarvefnum Íslenskt lambakjöt og á án ef eftir að hitta í mark á mörgum heimilum. Hann er líka góður daginn eftir og passar vel að taka afgang með í nesti.

Asískar núðlur með lambakjöti

  • 300 g lambahakk
  • 150-200 g eggjanúðlur
  • 2 msk. sesam olía
  • 1 tsk. five spice kryddblanda
  • 2 msk. sesamfræ
  • 1 tsk. chiliflögur
  • 2 msk. sojasósa
  • 3 hvítlauksgeirar, saxaðir
  • ½ spergilkál, skorið í hnappa
  • 100 g Pak choi (eða spínat)
  • 4 vorlaukar, hvíti hlutinn sneiddur

Aðferð:

  1. Hitið víða pönnu og helming sesamolíunnar.
  2. Steikið hakkið á háum hita í 5 mínútur, hrærið reglulega í á meðan.
  3. Hrærið five spice, chiliflögum, sojasósu og sesamfræjum saman við, lækkið hitann og eldið í 1 mínútu til viðbótar. Takið af pönnunni og geymið í skál til hliðar, pannan fer beint á helluna aftur á meðalhita.
  4. Hitið afganginn af sesamolíunni og svissið í u.þ.b 2 mínútur hvítlauk, spergilkál, pak choi og megnið af vorlauknum.
  5. Eldið núðlurnar samtímis samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, sigtið og bætið á pönnuna ásamt hakkblöndunni, hitið og blandið vel, stráið vorlauk yfir og berið fram asískar lambanúðlur. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert