Föstudagspítsan: Heimagerð salsasósa breytir bragðinu

Best er að byrja á því að setja sósuna og …
Best er að byrja á því að setja sósuna og setja svo nóg af Mozzarella osti yfir áður en áleggið fer á pítsuna. Mathias Reading/Unsplash

Föstudagspítsan hefur fest sig í sessi hjá landsmönnum. Í dag er föstudagspítsan undir mexíkóskum áhrifum því í stað hinnar venjulegu pítsusósu er hér að finna uppskrift af heimagerðri salsasósu sem gefur föstudagspítsunni annað yfirbragð og fer með fólk í ferðalag til Suður Ameríku. 

Með því að gera sósuna sjálf frá grunni komum vitum við nákvæmlega hvað er í henni og sleppum allri inntöku á aukefnum sem oft eru í tilbúnum vörum.

Þessi salsasósa er ekki bara góð á pítsuna heldur líka með öðrum mexíkóskum mat og hræðilega góð út á mexíkóskt salat svo dæmi sé tekið en uppskrift að því kemur síðar. 

Best er að byrja á því að gera sósuna og setja ofninn á hæðstu stillingu á meðan. Þegar sósan er klár er ekkert að vanbúnaði en að setja áleggið á. 

Sjálfri finnst mér langbest að setja vel af sósu á pítsuna, setja svo mjög mikinn Mozzarella-ost ofan á. Svo steikt nautahakk, sem er bara saltað og piprað, og svo kannski örlítið af niðursoðnu Jalapeno ofan á. Það má auðvitað bæta því út í salsa-sósuna en ég er hrifnari af því að hafa salsasósuna og mildari því börn vilja oft ekki mjög sterkan mat. 

Hægt er að nota þessa útfærslu á hvaða pítsabotn sem er en fyrir þá sem vilja spara sér sporin og fara einföldu leiðina þá er sniðugt að nota tilbúnar Tortilla-kökur sem pítsabotn. Ef þið hafið ekki prófað það þá gæti dagurinn í dag verið rétti dagurinn til þess! 

Heimagerð salsasósa á föstudagspítsuna er hreinasti unaður.
Heimagerð salsasósa á föstudagspítsuna er hreinasti unaður. Charlie Harris/Unsplash

Heimagerð salsasósa 

  • Smjörklípa
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif, má vera meira.
  • Safi úr 1/2 límónu
  • 1 tsk. cumin
  • 1 tsk. lífrænt hunang
  • 1 tsk. reykt paprika
  • salt eftir smekk

Aðferð: 

  1. Setjið smjör í pott og látið það bráðna.
  2. Mýkið lauk og hvítlauk í smjörinu og kryddið. 
  3. Bætið niðursoðnu tómötunum út í og látið malla í um það bil sjö mínútur. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert