Nick Solderblom, fyrrum kærasti sjónvarpsstjörnunnar Nicollette Sheridan, sem leikur hina skæðu en kynþokkafullu Edie Britt í „Aðþrengdum eiginkonum“, ber bólförum hennar ekki vel söguna og segir hana „leiðinlegan elskhuga“. Bætir hann um betur og gefur henni tvo af tíu mögulegum í einkunn.
Nick greindi breska dagblaðinu News of The World frá þessu. Sheridan væri köld, hörð og afskaplega leiðinleg í bólinu og mikið basl að eiga við hana. Hún hafi sýnt hundinum sínu meiri áhuga en honum þá átta mánuði sem þau voru saman. Ekki fer þó neinum sögum af færni Solderblom undir sængum. Fréttavefurinn Bang Showbiz greinir frá þessu.