Eva Longoria segist alvarlega skotin í nágrannakonum sínum, Jessicu Alba, Jessicu Simpson og Evu Mendes. Þær séu allar tengdar nánum vináttuböndum. „Þær koma mjög oft heim til mín. Við erum hópur. Þær eru gengið mitt. Í þeim er ég skotin. Ég elska þessar konur heitt,“ segir Longoria, sem leikur eitt aðalhlutverkið í Aðþrengdum eiginkonum.
Eva segir ennfremur frá því að hún hafi gaman af því að lesa um meint ástarlíf sitt á netinu. Kærasti hennar er körfuboltamaðurinn Tony Parker. „Það gerist um það bil einu sinni í viku að ég les einhverstaðar að ég sé trúlofuð. Þetta er ótrúlegt. Það er meira að segja birtur gestalisti og hringnum lýst,“ segir Eva í viðtali við GQ.