Bandarísku kvikmyndastjörnurnar Tom Cruise og Katie Holmes létu pússa sig saman í ítölskum miðaldakastala í gærkvöldi. Hjónavígslan fór fram samkvæmt hefðum vísindakirkjunnar svonefndu.
AP fréttastofan hafði eftir Arnold Robinson, talsmanni Cruise, að yfir 150 manns hefðu verið viðstaddir og í hópnum voru Hollywoodstjörnur og annað frægt fólk. Meðal gesta voru Jennifer Lopez, hjónin Will Smith og Jada Pinkett Smith, Jim Carrey, Richard Gere og David og Victoria Beckham.
Holmes, sem er 27 ára klæddist kjól sem Giorgio Armani hannaði og Cruise, sem er 44 ára, var í kjólfötum frá Armani. Ítalski söngvarinn Andrea Bocelli söng fyrir brúðhjónin í brúðkaupsveislunni.
Þetta er í þriðja skipti sem Cruise gengur í hjónaband en hann var áður giftur leikkonunum Mimi Rogers og Nicole Kidman. Þetta var fyrsta hjónaband Holmes en þau Cruise eiga saman dótturina Suri.