Íslenska kvikmyndin Börn hlaut verðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni Courmayeur Noir á Ítalíu um nýliðna helgi en myndin er framlag Íslands í forvali til Óskarsverðlaunanna.
Ragnar Bragason, leikstjóri myndarinnar, segir mikla eftirspurn vera eftir henni og nú liggi fyrir hátt í fjörutíu boð á kvikmyndahátíðir víðsvegar um heiminn sem verið sé að skoða. Sala á myndinni til annarra landa gengur einnig vel og nú þegar hafa fjögur lönd keypt hana. Ragnar er nú að leggja lokahönd á kvikmyndina Foreldrar sem verður frumsýnd 19. janúar hér á landi en hún er seinni myndin í tvíleiknum Börn og Foreldrar.