Bandaríski leikarinn George Clooney lét þau ummæli falla í viðtali við Daily Telegraph að hann vildi ættleiða unga, fagra og moldríka konu.
„Ég ætla að ættleiða fagra, 24 ára stúlku sem er moldrík," sagði Clooney, en hann er 45 ára. Hann segist ætla að hætta að lifa heilsusamlegu lífi og njóta þess í stað lífsins lystisemda.
„Ég ætla að éta, drekka og vera glaður. Og skítt með áhrifin sem það hefur á útlitið á meðan!" Clooney bætti á sig einum 13 kg fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Syriana og segist ekki hafa notið þess. Tökur á þeirri kvikmynd hafi verið afar leiðinlegar. Hann hafi elst um áratug á því ári.