Bandaríski myndlistarmaðurinn Jeff Koons mun á næsta ári sýna 12 til 15 af sínum stærri verkum í Versölum í Frakklandi. Líklegt er talið að verk eftir Koons í eigu franska milljarðamæringsins Francois Pinault verði meðal sýningargripa, en hann rekur listasafn í Feneyjum, Palazzo Grassi. Umsjónarmaður Versalasafns, Jean-Jacques Aillagon, er fyrrum yfirmaður safns Pinault.
Stefnt er að því að opna sýninguna í september á næsta ári og að hún standi til loka nóvember. Hún er hluti sýningaraðarinnar „Versailles Off“ þar sem sýna á samtímalist á lóð hallarinnar.
Nokkur verka Koons voru sýnd í Listasafni Íslands fyrir þremur árum, hluti af sýningunni „Í nærmynd“ sem tileinkuð var bandarískri samtímalist.