Bankinn sem hvarf
Bloggað um fréttina
-
Gunnlaugur I."TÆR SNILLD" - VAR ICESAVE LÍKA Í AFRÍKU ?
-
Steinunn Friðriksdóttirþá vitum við það
-
Hilmar SigvaldasonGæti verið frétt um íslenskan banka.
-
Ólafur RagnarssonHver er munurinn ???
-
Þórarinn Þ GíslasonEKKI MERKILEG FRÉTT. ÞAÐ VORU SVONA BANKAR Á
-
Þráinn Jökull ElíssonVíða liggja leiðir...
-
Gunnar GunnarssonMinn banki hvarf líka
-
Sædís Ósk HarðardóttirVoru IceSave menn líka í Úganda??'
-
Axel Jóhann HallgrímssonUg-andasave?
-
Ridar T. Falls6 orða saga #642
-
María RichterEkki erum við íslendingar hissa á þessu.....
-
Hörður HalldórssonÍslendingar á ferð?
Útsmognir svikahrappar fóru nýverið illa með íbúa í Úganda, en þeir komu upp gervibanka við landamæri Úganda og Kenía og tóku við sparifé íbúa. Svo létu þeir sig hverfa.
Bankinn opnaði útibú í bænum Malaba og var opnunin auglýst í útvarpinu. Á tveimur mánuðum voru rúmar 12 milljónir kr. lagðar inn í bankann.
En þegar innistæðueigendurnir sneru aftur í bankann til að taka út féð voru bankastarfsmennirnir farnir og það eina sem var eftir var miði sem á stóð: „Því miður hefur bankinn verið færður á nýjan stað.“
Þá höfðu svikahrapparnir greitt fyrir mat, leigu og auglýsingar með innistæðulausum ávísunum.
Leigusalinn hússins, þar sem bankinn starfaði, trúði því að „bankastarfsmennirnir“ hefðu verið heiðarlegir einstaklingar.
„Við undirrituðum samkomulag, og þeir létu mig auk þess fá ávísun fyrir leigunni út árið,“ sagði Richard Ojore við BBC í Afríku.
Til baka







Senda inn efni
