Norræni menningarsjóðurinn ákvað í dag að veita norræna leiklistarverkefninu „Udvandrerne“ 66 milljón króna styrk. Um er að ræða söng- og leikverk sem segir sögu útflytjenda og fólksflutninga séð með augum Íslendinga, Svía og Dana.
Borgarleikhúsið í Málmey, leikhúsið FÅR302 í Kaupmannahöfn og íslenski leikhópurinn Vesturport hljóta styrk Norræna menningarsjóðsins, sem nemur 66 milljónum króna (3 milljónum danskra króna), til að setja verkið á svið undir heitinu „Udvandrerne“ (Útflytjendurnir).