54 ára gamall Lundúnabúi að nafni Peter John var í gær myrtur í jarðarför tengdaföður síns. Var hann stunginn í hálsinn með skrúfjárni en ekki er enn vitað hver var þar að verki. Lík Johns fannst stuttu eftir að kistunni var komið fyrir í gröfinni.
John hafði stuttu áður afsakað sig og sagst ætla á klósettið. Hann sneri aldrei aftur, en starfsmaður kirkjunnar kom að honum þar sem hann lá blóðugur með skrúfjárn í hálsinum. Var strax flogið með hann á næsta sjúkrahús en hann var úrskurðaður látinn stuttu eftir komu sína þangað. Einn maður var handtekinn í kjölfarið og hefur réttarstöðu grunaðs í málinu. Lögreglan segist þó rannsaka alla möguleika í stöðunni og að ekki liggi fyrir enn hvort sá sem framdi ódæðið hafi verið gestur í jarðarförinni eða ekki.
Starfsmaðurinn í kirkjunni sem kom að John með skrúfjárnið í hálsinum fékk vægt áfall í kjölfarið. Talsmaður kirkjunnar segir í samtali við The Daily Mail að starfsmaðurinn þurfi á öllum andlegum stuðningi að halda sem hann geti fengið.