Bændur í Tasmaníu ráku upp stór augu þegar þeir fundu kind, sem talið er að hafi gengið frjáls í sex ár, og aldrei verið rúin.
Kindin, sem hefur fengið gælunafnið Shaun, sást ráfa um búgarð Peter og Netty Hazel, sem ákváðu að handsama kindina. Talið er að ullin utan á Shaun sé allt að 20 kíló.
Bændurnir ætla að rýja kindina og vonast eftir að slá með því met um hvaða kind hefur skilað af sér hvað mestri ull.