1,5 milljón manna í hættu

Þörf er á umfangsmikilli neyðaraðstoð í Búrma að sögn alþjóðlegra hjálparstofnana.  Oxfam samtökin segja að ein og hálf milljón fórnarlamba fellibylsins Nargis, sem reið yfir landið fyrir viku síðan, séu í bráðri lífshættu ef neyðaraðstoð berst ekki skjótt og ótakmörkuð til landsins. 

Mikill skortur er á hreinu vatni og  hreinlætisaðgerðum en fregnir herma að sjúkdómar og farsóttir séu farnar að breiðast út á svæðunum sem urðu verst úti.  Sameinuðu þjóðirnar áætla að einungis fjórðungur fórnarlamba hafi fengið aðstoð og talsmaður Alþjóðabjörgunarnefndarinnar (International Rescue Committee) segir að „óhugsandi neyðarástand" blasi við. 

Á fréttavef BBC kemur fram að herforingjastjórnin í Búrma hafi ekki enn veitt fjölda erlendum hjálparstarfsmönnum vegabréfsáritun til þess að koma inn í landið og dreifa hjálpargögnum. 

Þá kemur fram að hjálpargögnum hafi verið dreifst á sumum svæðum en að önnur hafi ekki fengið neina aðstoð.  Í gær kom sending frá Flóttamannastofnun SÞ (UNHCR) með 22 tonn af hjálpargögnum, þar á meðal tjöldum fyrir heimilislausa, mat, og lyfjum.

Mikil þörf er á hjálpargögnum í Búrma efitr að fellibylurinn …
Mikil þörf er á hjálpargögnum í Búrma efitr að fellibylurinn Nargis reið yfir landið fyrir átta dögum síðan. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert