Sósíalistinn Nicolas Maduro, forseti Venesúela, lofaði því í morgun að greiða milljarða Bandaríkjadala skuld venesúelska ríkisins við innflutningsfyrirtæki í landinu.
Mikill skortur hefur verið á ýmsum nauðsynjum í Venesúela á undanförnum misserum.
Innflutningsfyrirtækin segja að ríkið skuldi þeim þrettán milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 1.460 milljarða króna á gengi dagsins í dag, en Maduro hyggst nú greiða þriðjung af þesssum skuldum.
Þó kom ekki fram í máli hans hvað skuldin væri há og hvenær nákvæmlega hann hygðist greiða hana.
Alda mótmæla hefur breiðst um landið á seinustu mánuðum. Íbúar Venesúela eru afar ósáttir við hvernig ríkisstjórn Maduros hefur haldið á málunum. Verðbólgan mælist afar há í landinu, í kringum sextíu prósent, skortur á nauðsynjum er mikill og þá eru jafnframt afar ströng fjármagnshöft við lýði.
Mótmælendur krefjast þess að Maduro segi af sér, en hann hefur ekki orðið við því. Þess í stað hefur hann reynt að sölsa til sín enn frekari völd.